Fjöldi Íslendinga var þegar samankominn í norðurhluta Parísar um hádegisbil hér í Frakklandi, sex tímum fyrir leikinn við Austurríkismenn. Tólfan tilkynnti að opinber samkomustaður Íslendinga væri írskur bar í sama húsi og sá kunni veitingastaður, Rauða myllan, og þar var að myndast fín stemmning.