Frábær stemning er á meðal íslenskra stuðningsmanna í frönsku borginni Nice, nú þegar styttist í leikinn gegn Englandi í sextán liða úrslitum EM í knattspyrnu. Fjölmargir stuðningsmenn landsliðsins, bæði fólk sem er velviljað Íslendingum og Íslendingar sjálfir, eru saman komnir í miðbæ borgarinnar og skemmta sér vel, eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.