Íslendingar biðu með öndina í hálsinum á lokaandartökum leiks íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Englandi á Allianz Riviera-leikvanginum í Nice í kvöld. Myndskeið með lokasekúndum leiksins og þeirri óviðjafnanlegu stund þegar dómari leiksins flautaði leikinn af og Ísland var komið í átta liða úrslit mótsins má sjá í þessari frétt.