„Fáir gera lambalæri jafn-vel og Grikkir og ég ætla að sýna ykkur eina ótrúlega einfalda uppskrift. Þetta verður eins grískt og það getur orðið,“ segir Óskar kokkur í þætti dagsins af Korter í kvöldmat. Með lærinu ber Óskar fram stökka kartöflubáta, sumarlega sósu og að sjálfsögðu grískt salat.