Hillary Clinton sagði kosningarnar „tíma uppgjörs“ þegar hún tók formlega við útnefningu flokksins í gærkvöldi. Clinton, sem er fyrsta konan til þess að hljóta tilnefninguna í sögu Bandaríkjanna, sagði miklar áskoranir fram undan. „Kraftmikil öfl hóta nú að rífa okkur í sundur,“ sagði Clinton.