Kosningabarátta Donalds Trump hefur einkennst af digurbarkalegum fullyrðingum og svívirðingum í garð einstaklinga og heilu þjóðfélagshópanna. Á fyrsta kosningafundinum eftir að skipt um kosningastjóra kvað hins vegar við annan tón. Baðst Trump afsökunar á ummælum sem hann hefur látið falla.