Ljósmyndarinn Gunnar Leifur Jónasson hefur verið í geiranum í 30 ár og lengst af rekið ljósmyndastofuna Barna- og fjölskylduljósmyndir. „Eftir að hafa starfað á blöðum og tímaritum í dálítinn tíma var það síðasta sort að fara í það að verða portrett-ljósmyndari, það þótti ekki áhugavert.“