Eftirskjálftar hafa tafið björgunaraðgerðir á Ítalíu en mörg hundruð hafa mælst í dag, degi eftir skjálftann stóra sem reið yfir miðhluta Ítalíu í gær. Stærsti skjálftinn sem mælst hefur í dag er 4,3 að stærð og urðu björgunarsveitarmenn að yfirgefa byggingar og rústir um stundarsakir vegna hættu.