Ákvörðun Evrópusambandsins um að láta bandaríska tölvurisann Apple endurgreiða 13 milljarða evra, eða yfir 1.700 milljarða króna, afturvirkt í skatta á Írlandi hefur að vonum vakið mikla athygli. ESB hefur oft áður rannsakað starfsemi bandarískra stórfyrirtækja í Evrópu og sektað um háar fjárhæðir.