Hjörtur Hermannsson, varnarmaður íslenska 21-árs landsliðsins í knattspyrnu, segir að markmiðið fyrir leikinn gegn Frökkum í Caen á morgun sé það sama og þegar undankeppni Evrópumótsins hófst. Íslenska liðið hafi frá byrjun ætlað sér að vinna þennan riðil.