„Þú ert á rétta staðnum til að læra að drekka kaffi,“ var svarið sem Hanna Rúna Kristínardóttir fékk í atvinnuviðtali sínu í Kaffitári fyrir átta árum eftir að hafa lýst því yfir að hún drykki eiginlega ekki kaffi. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar, þó að í raun væri réttara að tala um kaffi.