Í dag var opnað að nýju fyrir umferð að Landsspítalanum frá Barónstíg en lokað hafði verið fyrir umferð þaðan síðan í lok síðasta árs þegar framkvæmdir hófust við nýtt sjúkrahótel á lóð spítalans. Heilbrigðisráðherra ítrekaði þá skoðun sína að ekkert mætti tefja framkvæmdir við nýjan spítala.