Þúsundir tóku þátt í mótmælum gegn fyrirhuguðum breytingum á lögum er varða fóstureyðingar í Póllandi í gær annan daginn í röð. Búist er við áframhaldandi mótmælum í dag. „Kirkjan hætti afskiptum af pólitík“ og „Virðið kvenréttindi“ voru á meðal slagorða sem sáust á spjöldum mótmælenda.