Áherslur stærstu flokkanna í menntamálum eru töluvert ólíkar. Sjálfstæðisflokkur vill stefna að fjölgun einkarekinna skóla á yngri stigum en Píratar vilja stefna að því að tryggja öllum í framhalds- og háskólanámi skilyrðislausa grunnframfærslu og að skólaskylt nám verði gjaldfrjálst.