Olíufélagið Magn, sem er hið stærsta sinnar tegundar í Færeyjum, er dótturfélag Skeljungs og stendur undir um 40% af rekstrarhagnaði samstæðunnar. Í ViðskiptaMogganum í fyrramálið er að finna viðtal við Valgeir M. Baldursson, forstjóra Skeljungs, þar sem hann ræðir þessi mál og fleiri.