Mikil úrkoma undanfarna tvo mánuði er farin að setja svip sinn á Elliðaárdalinn. Göngustígar eru á köflum á kafi í vatni og vatnsyfirborðið hefur náð alveg upp að nýlegri brú sem hefur þó jafnframt verið gagnrýnd fyrir að hafa verið of lágt reist. Leysingaveður gengur yfir landið í dag.