Knattspyrnuheimurinn minnist leikmanna brasilíska knattspyrnuliðsins Chapecoense en liðið nánast þurrkaðist út í flugslysi í gær. Liðið var á leið í sinn stærsta leik – úrslitaleik Copa Sudamericana, næststærstu keppni félagsliða í Suður-Ameríku.