Donald Trump, sem tók við embætti forseta Bandaríkjanna í dag, leiddi standandi lófatak til heiðurs Hillary Clinton. Í hádegisverðarboði í Capitol Hill að lokinni innsetningarathöfninni í dag, sagði Trump sér vera heiður að því að Clinton-hjónin hefðu verið viðstödd innsetningarathöfnina.