„Köfun er íþrótt sem felur í sér áhættu og fólk verður að vera meðvitað um hana,“ segir Manchestermaðurinn Phil Borden sem var mættur í Silfru í dag til að kafa en svæðið hafði verið lokað fyrir köfun og snorkl síðan á laugardag. Ekki var að sjá að slysin á svæðinu verði til að draga úr aðsókninni.