Milljónir Tyrkja munu ganga til kosninga á morgun, þegar haldin verður þjóðaratkvæðagreiðsla sem umbylt gæti stjórnkerfi landsins í átt að forsetaræði. Verði það niðurstaðan er um að ræða eitt stærsta skrefið í sögu landsins frá stofnun þess við hrun Ottómanaveldisins.