Búist er við hörðum umræðum milli Donald Trump og annarra leiðtoga G7-ríkja á Sikiley í dag. Trump hefur þegar ýft fjaðrir bandamanna í NATO með því að húðskamma þá fyrir að verja ekki meira fé til varnarmála. Þá sakaði Trump Þjóðverja um að vera „mjög slæma“ í viðskiptasamningum.