122 ríki samþykktu sáttmála um bann við kjarnorkuvopnum í gær á sérstakri ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Sáttmálinn getur leitt til lagalega bindandi alþjóðasamnings um bann við kjarnorkuvopnum. Stuðningsmenn þessa alþjóðlega samkomulags vonast til að það muni leiða til endanlegrar útrýmingar á öllum kjarnorkuvopnum.