Það er mikill raki í herberginu þar sem Abu Nabil skoðar perluhvíta sveppi sem vaxa í hvítum plastsekkjum sem hanga niður úr loftinu. Ostrusveppina nýta íbúar sýrlenska bæjarins Douma nú til matargerðar í stað kjöts, sem skortur hefur verið á vegna umsátursástands undanfarinna ára.