Sautján eru látnir og á annan tug særðir eftir árás á veitingastað í höfuðborg Búrkína Fasó, Ouagadougou. Að sögn vitna réðust þrír vopnaðir menn inn á tyrkneskan veitingastað við Kwame Nkrumah Avenue í gærkvöldi. Árásarmennirnir skutu á fólk sem sat að snæðingi fyrir utan veitingastaðinn.