Björgunarsveitir hafa nú náð að grafa lík 270 manna upp úr aurskriðunni sem féll í hlíð skammt frá Freetown, höfuðborg Síerra Leóne, í gærmorgun. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir borgarstjóra Freetown, Sam Gibson. Óttast er þó að tala látinna muni hækka enn frekar.