„Ég er mjög þreytt,“ sagði 13 ára stúlka sem liggur föst undir húsarústum í Mexíkóborg eftir að 7,1 stiga skjálfti reið þar yfir, þegar grannvaxinn sjálfboðaliði náði til hennar með vatn og súrefni. Íbúar Mexíkó bíða nú fregna af stúlkunni og fleiri sem kunna að vera á lífi.