Viðar Örn Hafsteinsson er iðulega með munninn fyrir neðan nefið þegar kemur að viðtölum og í kvöld var engin breyting þar á. Viðar var gríðarlega ósáttur með dómaratríóið í kvöld eftir að hans menn í Hetti töpuðu gegn Njarðvík í Dominosdeild karla. Liðið var alls ekki langt frá því að landa sínum fyrsta sigri og var Viðar vissulega ánægður með baráttu sinna manna þrátt fyrir ósigurinn.