„Ég er auðvitað ákaflega glaður og hamingjusamur með það að utanríkisráðherrarnir skuli hafa afgreitt þetta í dag. Það er diplómatískur sigur fyrir okkur Íslendinga. Það var ekki sjálfgefið,“ segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra varðandi aðildarumsókn Íslands.