Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð taka þessa dagana forskot á sæluna fyrir Lagningardaga sem hefjast hjá þeim í næstu viku. Æsispennandi og nokkuð athyglisverðri hagyrðingakeppni sem fram fór í dag markaði upphaf viku sem ber yfirskriftina kennarar á móti nemendum.
Vikan felst í því að nemendur skora kennara sína á hólm í hinum og þessum greinum – einni grein á hverjum degi.
Það virtist ekki vefjast fyrir keppendum að skella saman vísubotnum á örskömmum tíma, sem styttist stöðugt og fór niður í tíu sekúndur þegar hann var sem stystur.




