Bíða frétta af flóðinu

INNLENT  | 14. apríl | 17:28 
Hluti þess fólks sem þurfti að yfirgefa heimili sitt vegna flóðsins í Eyjafjallajökli mun hafast við í Hvolsskóla í nótt eða hjá vinum eða ættingjum í nágrenninu. Mbl sjónvarp hitti bændur sem viðurkenndu að þeir kynnu ekki alveg við það að hanga og bíða fyrirmæla.