Flak breska olíuskipsins SS Shirvan, sem þýskur kafbátur sökkti árið 1944, er fundið. Sjómælingaskip Landhelgisgæslunnar fann flakið eftir að ábending barst frá sjómönnum um að eitthvað kynni að leynast á hafsbotni, skammt undan Garðskaga.
Fyrir rúmu ári síðan var sjómælingaskipið við leit að flaki Goðafoss og fann þúst, sem talið var að tilheyrði Shirvan. Á þriðjudaginn fékkst það staðfest.
Notast var við íslenskan kafbát við leitina að flakinu, en það liggur á um hundrað metra dýpi. Af myndum kafbátarins að dæma hefur skipið brotnað í þrjá hluta og er illa farið.
Shirvan var grandað í sömu árás og Goðafoss, þann 10. nóvember 1944. Skipið villtist af leið sökum óveðurs og lenti í klóm þýsks kafbáts sem grandaði því með tundurskeyti. Mannlaust skipið rak í ljósum logum út á sjó uns það sökk til botns. Þar hefur það legið í felum gegnum árin og ekki fundist fyrr en nú.
Fundu sokkið skip við Ísland
INNLENT | 29. júlí | 16:36Flak breska olíuskipsins SS Shirvan, sem þýskur kafbátur sökkti árið 1944, er fundið. Sjómælingaskip Landhelgisgæslunnar fann flakið eftir að ábending barst frá sjómönnum um að eitthvað kynni að leynast á hafsbotni, skammt undan Garðskaga.
Mest skoðað
-
ERLENT | 21. maí | 6:31Tæplega 100 látnir í Oklahoma -
ERLENT | 21. maí | 11:59Fengu 8-12 mínútna fyrirvara -
ÍÞRÓTTIR | 20. maí | 20:00James: Fyrst og fremst svekktur -
ÍÞRÓTTIR | 20. maí | 23:25Tryggvi: Rautt en samkvæmt reglunum -
VIÐSKIPTI | 20. maí | 19:42Sulturnar og brjóstsykurinn seldust upp -
FÓLKIÐ | 21. maí | 19:50Dregur bíla á tíræðisaldri -
ERLENT | 21. maí | 11:21„Tákn vonar“ -
ÍÞRÓTTIR | 20. maí | 19:50Rúnar: Gerðum það sem þurfti -
ÍÞRÓTTIR | 20. maí | 23:35Zoran: Aldrei rautt spjald -
FÓLKIÐ | 20. maí | 14:48Hollywoodstjörnurnar skinu skært -
ERLENT | 20. maí | 16:51Hryðjuverkaárás afstýrt í Moskvu -
ÍÞRÓTTIR | 20. maí | 23:05Ásmundur: Ekki með hausinn rétt skrúfaðan á -
ERLENT | 20. maí | 14:45Mannskæðir skýstrókar í Oklahoma -
BÍLAR | 17. maí | 16:42Já-bíll tekur 360° myndir -
ERLENT | 21. maí | 18:15Þjóðin stendur með íbúum Moore -
SMARTLAND | 10. maí | 15:38Breytti eldhúsinu fyrir lítið -
ÍÞRÓTTIR | 20. maí | 19:45Páll: Við héldum út í dag -
INNLENT | 17. maí | 20:54Í hjarta mótorhjólamenningarinnar




