Kjamsað á kjömmum

INNLENT  | 16. nóvember | 14:10 
Nemendur og kennarar í Fjölbrautaskólanum í Ármúla fögnuðu degi íslenskrar tungu í nýjum salarkynnum skólans í dag. Á boðstólnum voru sviðakjammar, saltkjöt og meðlæti og virtist maturinn falla unglingunum vel í geð, að minnsta kosti þeim sem lögðu í hann.