Speltvefjur að hætti Ebbu

ÞÆTTIR  | 31. janúar | 17:00 
„Speltvefjur (fajitas) er einn af mínum uppáhalds réttum og alveg svakalega auðvelt að búa þær til,“ segir Ebba Guðný um nýjasta réttinn sem hún eldar í þættinum PureEbba á MBL Sjónvarpi. „Það kemur öllum á óvart hversu auðvelt það er að búa til sínar eigin vefjur. Svo er þetta svo sniðugt því það má nýta alskyns afganga inn í vefjurnar, t.d. pottrétti, kjúkling eða hvað sem er. Steikja lauk, hvítlauk og skera niður grænmeti í strimla og bera þetta svo fram með salsa sósu, sýrðum rjóma, avókadó eða öðru sem fólki dettur í hug.“ segir Ebba.