Helgi Björns nennir alltaf að taka Ef ég nenni

FÓLKIÐ  | 31. janúar | 17:36 
Helgi Björns söng Ef ég nenni fyrir MonitorTV í flugvél yfir Atlantshafinu.

MonitorTV skrapp til Kaupmannahafnar um nýliðna helgi til að fylgjast með Músíkpartíinu í Köben þar sem Jón Jónsson og hljómsveit tróðu upp.

Í fluginu hittu Monitor-liðar sjálfan Helga Björns, einnig þekktan sem Holy B, og hann raulaði meðal annars hið ódauðlega jólalag Ef ég nenni fyrir frétta- og tökumann.

Fylgist með í vikunni en þá koma fleiri myndskeið frá ferðalaginu inn á Mbl Sjónvarp.