Óvinsæll pólskur kærasti

INNLENT  | 4. febrúar | 10:00 
Fjórða myndin í röð stuttmynda sem MBL Sjónvarp sýnir á sunnudögum í samvinnu við Kvikmyndaskóla Íslands heitir Stanislaw. Þetta er gamanmynd sem fjallar um samband ungs Pólverja við tengdaföður sinn. Myndin er skrifuð sem ádeila á viðhorf Íslendinga gagnvart fólki af erlendum uppruna.

Fjórða myndin í röð stuttmynda sem MBL Sjónvarp sýnir á sunnudögum í samvinnu við Kvikmyndaskóla Íslands heitir Stanislaw. Þetta er gamanmynd sem fjallar um samband ungs Pólverja við tengdaföður sinn. Myndin er skrifuð sem ádeila á viðhorf Íslendinga gagnvart fólki af erlendum uppruna, án þess þó að halda uppi pólitískum rétttrúnaði eða afstöðu, að sögn höfundarins Jóns Más Gunnarssonar, sem segir þetta allt vera á léttu nótunum.

Í myndinni fylgjumst við með fyrstu kynnum unga mannsins af nýju tengdafjölskyldunni. Þarna kemur við sögu forboðin ást, skuggaleg leyndarmál og misskilningur á milli menningarheima. Jón Már útskrifaðist af tæknisviði Kvikmyndaskólans fyrir rétt rúmu ári en myndin var lokaverkefni hans við skólann.

Jón Már leikstýrði myndinni, skrifaði handritið, klippti hana, eftirvann, hljóðvann og litaleiðrétti. Aðstoðarleikstjóri var Valgeir Gunnlaugsson. Kvikmyndataka var í höndum Erlends Cassata, um hljóðupptöku sáu Elín Gylfadóttir og Jón Gauti Jónsson. Ennfremur sá Jón Már um framleiðslu og sviðsmynd og búninga í samvinnu við fleiri. Með aðalhlutverk í myndinni fara Óttar Már Ingólfsson, Magnús Ragnarsson og Katla Rut Pétursdóttir en myndin er 22 mínútur að lengd.

Fyrst og fremst grín
„Þetta er fyrst og fremst grín en myndin þarf nú að segja eitthvað. Ég hef oft horft á þessar staðalmyndir og skrifað út frá þeim. Viðhorf Íslendinga er svolítið skemmtilegt viðfangsefni,“ segir hann og útskýrir nánar. „Íslendingar meina vel. Hinn almenni Íslendingur er ekki rasisti en hann er stundum með skrýtin viðhorf sem eru úrelt. Svo má ekki gleyma því að þessi mynd er líka bara klassísk saga um forboðna ást,“ segir hann.

Myndbrellur í uppáhaldi
Jón Már leggur yfirleitt áherslu á tæknilegu hliðina enda útskrifaðist hann af tæknisviði og var þetta í fyrsta skipti sem hann settist í leikstjórastólinn. „Yfirleitt hef ég lagt áherslu á eftirvinnsluna, myndbrellur og þess háttar, það er mitt áhugasvið. Þarna ákvað ég að láta sögurnar ráða ferðinni frekar en brellurnar,“ segir Jón Már sem vinnur við eftirvinnslu hjá Pegasus þar sem hann byrjaði áður en hann útskrifaðist frá Kvikmyndaskólanum. Hann segir það vera skemmtilega vinnu. „Þetta er draumadjobbið.“