„Ég elska þennan sjeik“

SMARTLAND  | 7. febrúar | 14:40 
„Þetta er einn af mínum uppáhaldssjeikum,“ segir Ebba Guðný um gojí-kasjú-drykkinn sem hún kennir okkur að búa til í nýjum þætti af PureEbba á MBL Sjónvarpi. „Það besta er að hann er í raun eins og hollur ís en er samt saðsamur og góður eins og máltíð. Hvað er hægt að óska sér betra,“ segir Ebba.

„Þetta er einn af mínum uppáhaldssjeikum,“ segir Ebba Guðný um gojí-kasjú-drykkinn sem hún kennir okkur að búa til í nýjum þætti af PureEbba á MBL Sjónvarpi. „Ég nota í hann möndlumauk, goji-ber, banana, mangó og fleira. Svo má aðlaga hann eftir smekk,“ segir Ebba. „Það besta er að hann er í raun eins og hollur ís en samt saðsamur og góður eins og máltíð. Hvað er hægt að óska sér betra,“ segir Ebba.