Leiðin að draumastarfinu

INNLENT  | 9. febrúar | 9:18 
Krakkar í 9. og 10. bekk á Suðurnesjum leituðu að draumastarfinu á starfskynningu sem haldin var í Stapa í gær. Sumir vilja verða sjómenn, aðrir dýralæknar og enn aðrir flugmenn. Kynningin var liður í átaksverkefni sveitarfélaga og stjórnvalda til þess að efla menntun á Suðurnesjum.

Alls komu um sjö hundruð grunnskólanemar, auk nemenda í lífsleikni við Fjölbrautarskóla Suðurnesja, á starfskynninguna þar sem um áttatíu manns kynntu fyrir þeim störf sín og hvaða námsleiðir væri hægt að fara til þess að komast í þau.