Blár Ópal vinsæll á ný

INNLENT  | 9. febrúar | 11:42 
Strákarnir í Bláum Ópal hafa náð að fanga athygli þjóðarinnar ef eitthvað er að marka hversu oft lagið Stattu upp fyrir sjálfum þér hefur verið spilað á Youtube. Frá því að myndband með laginu var sett inn fyrir nokkrum vikum hefur verið horft á það tæplega 100 þúsund sinnum.