Heitavatnslaust í leikskólanum

INNLENT  | 9. febrúar | 17:10 
Krakkarnir á Kvistaborg létu það ekki á sig fá þó heita vatnið hætti að renna í ofnum og krönum leikskólans í dag. Þau mættu bara vel klædd og borðuðu heita súpu til að takast á við kuldann, en vegna viðgerða var ekkert heitt vatn í Fossvoginum í dag.