„Ég var mjög ósáttur við sjálfan mig eftir síðasta leik gegn HK en núna erum við komnir á sigurbraut á ný,“ sagði Atli Hilmarsson þjálfari Akureyrar við mbl.is í kvöld eftir öruggan sigur á Gróttu í N1-deild karla í handknattleik.
„Við erum bestir þegar við erum einbeittir og náum upp alvöru vörn og hraðaupphlaupum. Það er mikilvægt að við komum okkur í gírinn fyrir átökin sem eru fram undan og þetta hjápar til þess. Grótta getur strítt hvaða liði sem er,“ sagði Atli sem segir stöðuna á leikmannahópnum sínum vera að skána en meiðsli hafa hrjáð liðið mjög í vetur. Heimir Örn Árnason lék þó ekki í kvöld og mun þurfa einhvern tíma til viðbótar til að koma sér í gang. Ásgeir Jónsson lék hins vegar sinn fyrsta leik fyrir Akureyri og þá er Andri Snær Stefánsson kominn frá Danmörku og byrjaður að æfa með liðinu.




