Ólafur Bjarki Ragnarsson, stórskytta úr HK, fór á kostum í sigurleiknum gegn Val í kvöld og skoraði 10 mörk utan af velli en HK sigraði 28:26.
HK er nú sex stigum fyrir ofan Val (en ekki átta eins og blaðamaður heldur fram í myndskeiðinu) en Ólafur sagðist ekki hafa skoðað stöðuna í deildinni áður en hann mætti til leiks.
„Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá kíkti ég ekki á hversu mörg stig voru á milli liðanna fyrir leikinn. Ég vissi bara að ef við myndum tapa þá væri orðið allt of stutt á milli, þannig að við erum mjög ánægðir með sigurinn í dag,“ sagði Ólafur í samtali við mbl.is að leiknum loknum.




