Barack Obama Bandaríkjaforseti sparaði ekki lofið þegar hann tók á móti Mario Monti forsætisráðherra Ítalíu í gær, fimmtudag. Obama sagði Monti auka tiltrú manna á evrópska efnahagssvæðinu með björgunaraðgerðum sínum heima fyrir.
Obama sagðist viljugur til að gera hvað hann gæti til að hjálpa evruríkjunum að koma á stöðugleika innan samstarfs þeirra. Forsetinn er sagður hafa miklar áhyggjur af því að vandræðin í Evrópu breiðist út en á fundinum sagðist hann hafa miklar mætur á ítalska forsætisráðherranum og fulla trú á leiðtogahæfileikum hans á erfiðum tímum.




