Hilmar Stefánsson vildi ekki meina að Afturelding hefði krækt í eitt stig þegar liðið gerði jafntefli við Fram 23:23 í N1-deild karla í handknattleik. Hann sagði að miðað við stöðuna og að þeir hefðu verið tveimur mörkum yfir í hálfleik, þá hafi það verið klaufaskapur að missa forskotið niður. Hann sagði jafnframt að það væri stígandi í leik liðsins.
Hilmar sagði að dómgæslan hefði ekki haft úrslitaáhrif í kvöld og sagði jafnframt að það hefði frekar hallað á heimamenn í fyrri hálfleik. Einar Jónsson, þjálfari Fram, tjáði sig um störf þeirra og var ekki sammála Hilmari. Viðbrögð Einars má lesa í íþróttablaði Morgunblaðsins sem kemur út á morgun.
Spurður hvað hefði farið í gegnum huga hans þegar hann stóð á punktinum tilbúinn að taka vítakast þegar rétt um 10 sekúndur voru eftir af leiknum sagði Hilmar: „Gamli! - ég er búinn að taka mörg vítaköst á Basta [Sebastian Alexandersson], það þýðir ekkert annað en að vera kaldur.“




