Anton: Þeir voru grimmari og ákveðnari

ÍÞRÓTTIR  | 9. febrúar | 23:10 
Anton Rúnarsson var markahæstur Valsmanna í kvöld þegar liðið tapaði fyrir HK á útivelli 28:26 í N1-deildinni í handknattleik.

Anton Rúnarsson var markahæstur Valsmanna í kvöld þegar liðið tapaði fyrir HK á útivelli 28:26 í N1-deildinni í handknattleik. 

„Þeir voru grimmari bæði í vörn og sókn og við vorum bara einfaldlega slakir og ekki nógu grimmir eins og við vorum í fyrri hálfleik,“ sagði Anton um síðari hálfleikinn í kvöld. Valur náði fjögurra marka forskoti í fyrri hálfleik og hafði yfir að loknum fyrri hálfleik 14:12.