Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, áleit Steve Jobs heitinn, forstjóra Apple, vera kraftmikinn og skapandi hugsjónamann. Hann fiktaði hinsvegar við ólögleg eiturlyf í æsku og myndaði lítil tengsl við kollega sín. Þetta kemur fram í skjölum sem FBI hefur opinberað.
Steve Jobs, sem lést í fyrra eftir baráttu við krabbamein, hefur verið hylltur sem einn helsti hugsjónamaður tækniframfara af sinni kynslóð. Í byrjun 10. áratugarins tók FBI fjölda viðtala við vini hans og samstarfsmenn, í skjóli nafnleyndar, vegna þess að hann var á lista hjá þeim yfir menn sem kom til greina að sækjast eftir í viðkvæm stjórnunarverkefni innan alríkislögreglunnar.
Myndin sem dregin er upp af Jobs í skjölunum er kunnugleg. Þar kemur fram að hann hafi haft hugsjónir um miklar tækniframfarir, verið þrjóskur og samstarfsmenn hans hafi óttast hann, en jafnframt dáðst að honum fyrir drifkraft hans og hugsjón. Jobs viðurkenndi sjálfur að hafa fiktað við hass og LSD í æsku sinni og er það skráð í skjöl FBI.
Þá kemur fram að sumir viðmælendur hafi dregið heiðarleika Jobs í efa og sagt að hann hafi verið afar erfiður í samstarfi. „Nokkrir einstaklingar sögðust efast um heiðarleika Jobs og töldu að hann hagræddi sannleikanum til að ná markmiðum sínum,“ segir í skjölunum. Flestir sem rætt var við mæltu hinsvegar með honum í mikilvæg störf fyrir ríkisstjórnina.




