Flamingófuglar frusu fastir

FÓLKIÐ  | 10. febrúar | 4:55 
Margir líða fyrir frosthörkurnar í Evrópu og eru dýrin þar ekki undanskilin. Um 55 bleikir flamingófuglar fundust dauðir í Suður-Frakklandi, en fætur þeirra höfðu frosið fastir í vatni og komust fuglarnir því hvorki komist lönd né strönd.

Flamingófuglar munu vera afar viðkvæmir fyrir kulda og hafa dýraverndunarsamtök reynt að koma þeim fyrir á fuglaverndunarsvæðum. Áframhaldandi frosti er spáð í Evrópu næstu daga.