Áframhaldandi ógnaröld í Homs

ERLENT  | 10. febrúar | 7:25 
Rúmlega 80 manns létust í átökum víðs vegar um Sýrland í gær. Meirihluti þeirra lést í borginni Homs, þar sem ógnaröld hefur ríkt að undanförnu.

Rúmlega 80 manns létust í átökum víðs vegar um Sýrland í gær. Meirihluti þeirra lést í borginni Homs, þar sem ógnaröld hefur ríkt að undanförnu.

Rami Abdul Rahman, talsmaður mannréttindasamtaka í Sýrlandi, sagði að 57 hefðu látist í Homs, þarf af 36 í hverfinu Baba Amr. Þá létu 11 lífið þegar sprengja féll á hús í Inshaat-hverfi í borginni.

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fordæmir árásirnar og segir þær smánarlegt blóðbað.

Að minnsta kosti 400 manns hafa látist undanfarna sex daga í Homs og nágrenni og stjórnarherinn hefur nú gripið til þungvopna. Íbúar borgarinnar fela sig inni í húsum sínum og bíða örlaga sinna.

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir að stjórn Assads sé augljóslega ákveðin í að myrða sína eigin þjóð. „Það liggur ljóst fyrir að þessi ríkisstjórn er einbeitt í að myrða og særa sitt eigið fólk,“ sagði Cameron.

William Hague, utanríkisráðherra Bretlands, segir að Bretar hafi ekki í hyggju að láta uppreisnarmönnum í Sýrlandi vopn í té.

 Ahmet Davutoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, segir að alþjóðasamfélagið hafi ekki efni á að horfa á blóðbaðið í Sýrlandi án þess að aðhafast nokkuð. Hann hvetur alþjóðasamfélagið til að koma saman og finna lausn á málefnum Sýrlands. Þjóðverjar styðja tillögur Arababandalagsins, en flestar aðrar stærri þjóðir hafa ekki gert afstöðu sína opinbera.

Sýrlenskir mómælendur hafa hvatt til mótmæla gegn Rússlandi í dag. „Rússar eru að drepa börnin okkar,“ segir á Facebook-síðu sem kallast Sýrlenska byltingin 2011.