Að minnsta kosti 260 dauðum höfrungum skolaði á landi í Perú í vikunni. Þeir hafa fundist meðfram 106 km langri strandlengju á svæðinu Lambayaque. Yfirvöld segja ekki ljóst hvers vegna dýrin dóu, en útiloka ekki að veiðimenn hafi elt þau.
Fiskimaður sem gerir út frá svæðinu segir að höfrungar finnist þar alla jafna ekki, að minnsta kosti sé mjög sjaldgæft að sjá þá á grunnsævi meðfram ströndinni. Sjávarrannsóknarmiðstöð Perú tók sýni úr höfrungunum til rannsókna. Sérfræðingur á þeirra vegum segir að óvenjumargar ansjósur hafi einnig fundist, fljótandi dauðar í sjónum.
Hann segir líklegt að höfrungarnir og ansjósurnar hafi drepist af sömu orsökum, eða ansjósurnar sýkt höfrungana.




