Brennheit aska spýttist tvo kílómetra upp í loftið þegar eldgos hófst í Lokon-eldfjalli á eyjunni Sulawesi í Indónesíu í morgun. Íbúum í nágrenni fjallsins hefur verið ráðlagt að halda sig í að minnsta kosti 2,5 kílómetra fjarlægð frá fjallinu, sem er í um 20 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Manado.
Lokon-fjall gaus síðast árið 1992 og þá voru hundruð manna flutt frá heimilum sínum í borginni. Indónesía tilheyrir hinum svokallaða „Eldhring“ í Kyrrahafinu, þar sem eldvirkni og aðrar jarðhræringar eru tíðar.




