Vafasöm ákvörðun í upphafi að nota Gillz

VIÐSKIPTI  | 10. febrúar | 9:50 
Mikil umræða hefur átt sér stað síðustu vikur um stóra límmiðamálið svokallaða. Stjórnendur Já.is ákváðu þá að framleiða og dreifa límmiðum sem viðskiptamenn þeirra gætu notað til þess að líma yfir mynd á forsíðu símaskráarinnar.

Mikil umræða hefur átt sér stað síðustu vikur um stóra límmiðamálið svokallaða. Stjórnendur Já.is ákváðu þá að framleiða og dreifa límmiðum sem viðskiptamenn þeirra gætu notað til þess að líma yfir mynd á forsíðu símaskráarinnar. Myndin er jú af þekktum einstaklingi sem fyrirtækið réð til sín, líklegast til þess að styrkja vörumerkið Já.is.

Alkemistinn fékk Friðrik Eysteinsson, aðjunkt við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og ráðgjafa hjá Markaðsmenn.is, til þess að skoða hvað fræðin segja um notkun á frægu fólki til þess að styrkja vörumerki eða auka sölu.